Margit Sandemo

Margit Sandemo

Þær fréttir bárust í vikunni að norski rithöfundurinn Margit Sandemo hefði orðið bráðkvödd í svefni á heimili sínu, 94 ára að aldri. Friðsælli dauðdaga er varla hægt að hugsa sér og ef einhver á það skilið að kveðja heiminn með svo rólegum hætti er það þessi indæli...
Krummi til bjargar

Krummi til bjargar

Krummi Króm er bók sem rataði í hendur okkar mæðgina fyrir ekki svo löngu. Bókin kom út nýlega og er skrifuð af Ingibjörgu Kr. Ferdinandsdóttur, menntunarfræðingi og kennara, og myndskreytt af Hildi Björk Þorsteinsdóttur. Ingibjörg gefur bókina sjálf út en áður hefur...
Auðleysanlega flétta

Auðleysanlega flétta

Fléttan eftir franska rithöfundinn og kvikmyndaleikstjórann Laetitiu Colombani er einföld bók. Sagan segir frá þremur konum sem tengjast án þess að gera sér grein fyrir því. Smíta er stéttleysingi í Indlandi sem berst gegn ríkjandi skipulagi samfélagsins og neitar að...
Njótum líðandi stundar

Njótum líðandi stundar

Ég greip splunkunýja og frekar litsterka kápu á bókasafninu í þetta sinn.  Stór og mikil prófílmynd af fjólublárri konu sem líkist helst Angelinu Jolie ríkir yfir bakgrunninum og fyrir neðan eru fleiri litlar fígúrur í ýmsum iðkunum. Bókin heitir Undraherbergið og er...
Allavega einhver bjartsýni

Allavega einhver bjartsýni

  Á meðan ég kljáðist við lesefnisleysi í sumarbústaðnum fyrir nokkrum vikum mundi ég skyndilega eftir því að ég get hlaðið niður rafbókum á lesbrettið mitt. Rafbækur eru fínar aflestrar, sérstaklega ef þær eru lesnar á lesbretti þar sem ekki er mikil baklýsing....
Slímast í eldhúsinu

Slímast í eldhúsinu

Fyrir nokkrum vikum gaf Katrín Lilja Sigurðardóttir, eða Sprengju-Kata, út Slímbók Sprengju-Kötu. Ég þekki Sprengju-Kötu helst í tengslum við Ævar vísindamann, þar sem hún kemur með skemmtileg og fræðandi innslög í þættina hans eða á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit...
Yfirgefnu bækurnar

Yfirgefnu bækurnar

  Mér hefur alltaf þótt hrikalega erfitt að losa mig við bækur. Ég bara fæ mig ekki til að henda bók eða setja hana í pappírsendurvinnsluna eða eitthvað þaðan af verra. Bókabrennur hafa aldrei átt upp á borð hjá mér. Frá unga aldri hefur það verið barið í mig að...
Hvernig er að vera gleymd?

Hvernig er að vera gleymd?

Vísindaskáldsögur heilla mig óendanlega mikið. Ímyndunaraflið sem þarf til að hugsa upp nýja heima, nær óhugasandi atburði og nýstárlega tækni er bara eitthvað svo magnað. Claire North hefur ótrúlega hæfileika þegar hún beitir pennanum og hefur sent frá sér fjórar...
Rauða minnisbókin

Rauða minnisbókin

Rauða minnisbókin er frumraun blaðakonunnar Sofiu Lundberg og hefur slegið í gegn svo um munar og hefur verið nú þegar verið þýdd á fjölda tungumála um allan heim. Kápan er lokkandi og gefur loforð um ferðalög. Það er ástæðan fyrir því að ég greip hana úr hillunni á...
Fræðibækur fyrir fróðleiksfúsa krakka

Fræðibækur fyrir fróðleiksfúsa krakka

Algengasta spurningin á heimilinu hjá okkur er „af hverju [eitthvað sem er nær ómögulegt að svara nema kunna skammtafræði og vera með doktorsgráðu í geimvísindum]?“. Fyrir svona fimm árum, þegar „af hverju?“ spurningarnar byrjuðu, var ég meira...
Bækurnar sem ég las ekki

Bækurnar sem ég las ekki

Það er góð og gild regla að dæma ekki bók af kápunni og ég er því tiltölulega sammála. Kápa bókar hefur ekki úrslitavald yfir því hvort bókin er lesin af mér eða ekki, en það hjálpar ef bókin er falleg og lítur út fyrir að höfða til mín. Það skal enginn efast um mátt...
Allt um það sem móðir mín las í fæðingarorlofinu

Allt um það sem móðir mín las í fæðingarorlofinu

Fyrsta (og þar til nú eina) færslan sem ég setti inn á þetta bókablogg fjallaði um Orlandó, síðustu bókina sem ég náði að klára áður en ég fæddi barn. Nú er það barn orðið hálfs árs, en sex mánuðir er einmitt hámarkslengd hins opinbera fæðingarorlofs sem í boði er...