by Katrín Lilja | júl 19, 2018 | Skáldsögur, Valentínusardagur
Bók Lily King, Sæluvíma, kom út fyrir stuttu í þýðingu Ugga Jónssonar. Bókin kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 2014 og hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna um allan heim og verið gefin út í fimmtán löndum. Bókaútgáfan Angústúra gefur bókina út á...
by Katrín Lilja | júl 19, 2018 | Skáldsögur, Vísindaskáldsögur
Harry August fæðist, lifir lífi sínu og deyr, rétt eins og við öll. Hann er þó nokkuð frábrugðinn venjulegu fólki því hann fæðist aftur og aftur, á sama stað, á sama tíma af sömu foreldrum með fullkomið minni af fyrra lífi sínu. Harry August er Ourobouran og einstakur...
by Katrín Lilja | júl 11, 2018 | Íslenskar skáldsögur, Skáldsögur
Eftir að ég kláraði að lesa Raddir úr húsi loftskeytamannsins var ég logandi spennt að lesa Samfeðra eftir Steinunni G. Helgadóttur. Bókin er ekki sögð framhald af Raddir úr húsi loftskeytamannsins og að vissu leiti er ég því sammála en samt örlítið ósammála því...
by Katrín Lilja | júl 6, 2018 | Íslenskar skáldsögur, Skólabækur, Smásagnasafn
Raddir úr húsi loftskeytamannsins er samansafn smásagna og ég var strax föst í neti bókarinnar eftir fyrstu söguna um loftskeytamanninn sem er fæddur til að segja sögur. Steinunn G. Helgadóttir skrifaði Raddir úr húsi loftskeytamannsins og bókin kom út árið...
by Katrín Lilja | júl 2, 2018 | Barnabækur, Íslenskar barnabækur
Bókasöfn eru dásamlegur staður. Þau eru uppfull af alls kyns verðmætum, huldum heimum og ævintýrum sem leynast í ólesnum bókum. Eða ólesnum af okkur það er að segja. Í síðustu ferð á bókasafnið, þar sem ungir menn voru hvattir til að velja sér bók til að lesa,...
by Katrín Lilja | jún 25, 2018 | Glæpasögur, Spennusögur
Dan Brown sendi frá sér nýja bók fyrir skemmstu, bókina Uppruni. Brown er hvað þekktastur fyrir að skrifa Da Vinci-lykilinn sem fór sigurför um heiminn þegar hún kom út árið 2003. Síðan Da Vinci-lykillinn kom út hefur Brown skrifað tvær bækur til viðbótar um Robert...
by Katrín Lilja | jún 19, 2018 | Barnabækur, Loftslagsbókmenntir
Kvöldlesningin fyrir einn af ungunum síðustu kvöld hefur verið Flökkusaga eftir Láru Garðarsdóttur. Bókin er hugljúf saga um litlu birnuna Ísold og mömmu hennar sem þurfa að halda á nýjar slóðir. Heimkynni þeirra á norðurslóðum hafa tekið breytingum vegna...
by Katrín Lilja | jún 17, 2018 | Ást að vori, Kvikmyndaðar bækur, Skáldsögur
Ég var að enda við að ljúka við Bókmennta- og kartöflubökufélagið eftir Mary Ann Shiffer og Annie Barrows og er uppfull af hlýjum tilfinningum og sé allt í bleikri móðu. Allt er svo milt og ljúft og krúttlegt. Bækur hafa tvímælalaust áhrif á það hvernig við sjáum...
by Katrín Lilja | jún 14, 2018 | Skáldsögur
Mér finnst ég næstum óverðug að fjalla um Allt sundrast eftir Chinua Achebe. Bókin er talin eitt af höfuðritum afrískra bókmennta og skrifuð af Nígeríumanninum Chinua Achebe og kom fyrst út árið 1958. Við fylgjumst með sögu Igbo þjóðflokksins á þeim tíma er hvíti...
by Katrín Lilja | maí 27, 2018 | Barnabækur
Hver elskar ekki að detta óvænt niður á eitthvað gott? Svona eins og þegar maður finnur fimmþúsund kall í vasanum á gömlum jakka? Eða vera sagt að maður þurfi að ryksuga, en þarf þess svo ekki af því einhver annar gerði það fyrir þig? Þegar ég datt niður á...
by Katrín Lilja | maí 26, 2018 | Skáldsögur
Hvernig er að vera barn eiturlyfjabaróns í Mexíkó? Ekkert rosalega skemmtilegt, er niðurstaða mín eftir lesturinn á bókinni Veisla í greninu eftir mexíkóska rithöfundinn Juan Pablo Villalobos. Tochtli er á óræðum aldri, en ungur. Hann telur sig vera gáfaðan og...
by Katrín Lilja | maí 23, 2018 | Barnabækur
Skrímslaprinsessan fær bólu á konunglegt nefið í bókinni Konungborna bólubaslið. Bókin er skrifuð af Viggó I. Jónassyni og myndskreytt af Ara Yates. Í viðtali við Vísi segir Viggó að bókin sé skrifuð fyrir dóttur hans og boðskapurinn með bókinni sé að minnka...
by Katrín Lilja | maí 22, 2018 | Barnabækur
Fjöldinn allur af börnum þurfa að glíma við það að foreldrar þeirra skilja og taka svo saman við einhvern annan. Í bókinni Norn eftir Kim Fupz Aakeson og Rasmus Bregnhöi er tekist á við þær tilfinningar sem börn þurfa að glíma við þegar nýr maki kemur inn í spilið. Í...
by Katrín Lilja | maí 21, 2018 | Barnabækur
Ég hef heyrt áróður gegn snjalltækjum úr öllum áttum; frá leikskólanum, skólanum, talmeinafræðingnum, heilsugæslunni og ég gæti talið endalaust upp. Þetta er áróður sem alltaf fær mig til að fá smá samviskubit, minnir mig á að gera betur og næstum því fær mig til að...
by Katrín Lilja | maí 4, 2018 | Glæpasögur, Skólabækur
Í síðustu viku kom út bókin Marrið í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur. Bókin vann fyrsta Svartfuglinn, verðlaun sem eru afhent höfundum sem eru að gefa út sína fyrstu glæpasögu. Svartfuglinn eru verðlaun sem spennusagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og...