by Ritstjórn Lestrarklefans | jan 24, 2019 | Íslenskar skáldsögur, Skáldsögur, Sögulegar skáldsögur, Spennusögur
Ég hafði aldrei áður lesið bækur Ólafs Jóhanns Ólafssonar, fyrr en loks í síðustu viku. Ég fékk nefnilega inflúensu (eina skiptið sem ég gleymi að fara í flensusprautu!) og fannst þá kjörinn tími til að opna hljóðbókarappið mitt til að koma mér í gegnum þennan...
by Katrín Lilja | jan 23, 2019 | Fréttir
Þann 20. janúar síðastliðinn var opnuð sýningin Þetta vilja börnin sjá! á Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Á sýningunni er hægt að skoða myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem komu út á árinu 2018. Sýningin í Gerðubergi stendur til 31. mars og er opin á milli 9:00...
by Aðsent efni | jan 22, 2019 | Íslenskar skáldsögur, Jólabækur 2018, Skáldsögur
Mér hefur alltaf þótt ég fædd á vitlausum tíma. Ég er svokallað „eitís“barn, alin upp af eldri systkinum sem fíluðu Uriah Heep og Dr Hook með ívafi frá töluvert öldruðum foreldrum sem vildu ekkert annað á sinn fón en Ellý Vilhjálms og Ingimar Eydal. Inn í þessa...
by Ragnhildur | jan 20, 2019 | Íslenskar skáldsögur, Jólabækur 2018, Lestrarlífið, Skáldsögur
Á meðal þeirra fjölmörgu bóka sem mig langaði að fá í jólagjöf voru Kópavogskrónika eftir Kamillu Einarsdóttur og Horfið ekki í ljósið eftir Þórdísi Gísladóttur. Ósk mín rættist reyndar ekki, en við hjónin björguðum því með sameiginlegu skiptiátaki og státum nú af...
by Aðsent efni | jan 19, 2019 | Jólabækur 2018, Skáldsögur
Með áhugaverðari bókaklúbbum seinni tíma er án efa bókaklúbbur Angústúru. Etýður í snjó eftir Yoko Tawada er sjötta bókin sem kemur út í bókaröð klúbbsins og er Elísa Björg tilnefnd til Íslensku þýðingaverðlaunanna 2019 fyrir þýðingu sína á bókinni. Jafnframt er þetta...
by Katrín Lilja | jan 18, 2019 | Furðusögur, Jólabækur 2018, Ungmennabækur
Fyrir margt löng síðan, rétt fyrir unglingsárin, las ég bækur Pullman um Lýru; Gyllta áttavitann, Lúmska hnífinn og Skuggasjónaukann. Ég las þær með augum krakka sem sér það ævintýralega í sögunni; það spennandi og það framandi. Áhugaverðast við söguna þótti mér að...
by Katrín Lilja | jan 17, 2019 | Fréttir
Fjöruverðlaunin, bókmennta verðlaun kvenna, voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða í gær. Verðlaunahafar að þessu sinni voru fimm. Veitt eru verðlaun í þremur flokkum; fagurbókmenntir, fræðibækur og rit almenns eðslis og barna- og unglingabókmenntir. Sigurvegarar að...
by Anna Margrét Björnsdóttir | jan 17, 2019 | Jólabækur 2018, Skáldsögur
Bestu bækurnar eru yfirleitt bækurnar sem maður vill helst ekki klára og þannig var sambandi mínu við Dag einn í desember einmitt háttað. Bókin er skrifuð af Josie Silver og kom út fyrir jólin í íslenskri þýðingu Herdísar Hübner. Ég byrjaði á henni fyrir jól, en lauk...
by Katrín Lilja | jan 15, 2019 | Lestrarlífið
Hvort er betra að hlusta á hljóðbók eða lesa bókina á pappír? Nú eða lesa hana sem rafbók? Það er í raun ekkert eitt svar sem segir manni hvað sé best, eins og allt í þessum heimi er það háð aðstæðum hvað hentar að hverju sinni. Það er háð því hverju maður vill ná...
by Katrín Lilja | jan 14, 2019 | Barnabækur, Furðusögur, Íslenskar barnabækur
Hefðin er að sökkva sér í safaríka, brakandi ferska jólabók á jóladag. Eða svo er mér sagt. Ég sökkti mér í aftur á móti niður í spennandi barnabók sem er ekki glæný heldur hefur setið í hillunni hjá mér ólesin allt of lengi. Úlfur og Edda – Dýrgripurinn eftir...
by Katrín Lilja | jan 12, 2019 | Leslistar, Lestrarlífið
Árið 2018 var fyrsta ár Lestrarklefans og svo heppilega vill til að þetta var með eindæmum gott bókaár. Við lásum margar frábærar bækur, en í tilefni áramótanna tíndum við saman smá lista yfir þær bækur sem okkur finnst standa upp úr í útgáfu ársns. [hr...
by Katrín Lilja | jan 10, 2019 | Fréttir
Á dánardegi Árna Magnússonar 7. janúar efndi starfsfólk á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum til ættarmóts Njáluhandrita og nýtti sér það tækifæri að hafa Reykjabók, sem lánuð var frá Kaupmannahöfn á sýninguna Lífsblómið, með á handritamótinu. Svanhildur...
by Katrín Lilja | jan 10, 2019 | Barnabækur, Fræðibækur, Jólabækur 2018, Ungmennabækur
Fyrir jólin datt í búðirnar bókin Norrænu goðin eftir Johan Egerkrans í íslenskri þýðingu Sigurðar Þórs Salvarssonar. Bókin er bráðfalleg með stórfenglegum, myrkum myndum og sögum úr Völuspá, Grímnismálum, Vafþrúðnismálum og fleiri fornum norrænum handritum. Bókin kom...
by Katrín Lilja | jan 9, 2019 | Fréttir
Miðstöð íslenskra bókmennta úthlutaði rúmlega 300 styrkjum í öllum flokkum á síðasta ári. Umsóknum um styrki fjölgaði en svigrúm til styrkveitinga var líka meira þar sem meira fjármagn var til skiptanna. Fleiri fengu úthlutuðum styrkjum en á síðustu árum á undan....
by Ritstjórn Lestrarklefans | jan 9, 2019 | Jólabækur 2018, Ljóðabækur
Ég hef það stundum á tilfinningunni að það að lesa ljóð sé aðeins sport sem bókmenntaséní og fræðifólk brilleri í; að alþýðleg Reykjavíkurmær, eins og ég, eigi þar með ekkert í að vera að spá og spekúlera í merkingu ljóða. Ég tók þessar efasemdir um hæfni mína til að...