by Katrín Lilja | des 9, 2018 | Lestrarlífið
Bækur eru tilavalin jólagjöf í alla pakka að mínu mati. Í minningunni eru bestu jólin þau þar sem ég fékk bara bækur í jólagjöf. Allir pakkarnir voru harðir og ferkantaðir. Ég eyddi öllum jólunum í náttfötum og las hverja bókina á eftir annarri. Það var alltaf gaman...
by Katrín Lilja | des 8, 2018 | Barnabækur, Íslenskar barnabækur, Jólabækur 2018, Ungmennabækur
Mér hefur verið tíðrætt um Þínar eigin-bækur Ævars Þórs Benediktssonar. Hef nefnt þær í þó nokkrum færslum hér í Lestrarklefanum, enda er hann einn söluhæsti barnabókahöfundur á Íslandi í mörg ár. Nýjasta bókin hans Þitt eigið tímaferðalag hefur nú þegar setið á...
by Katrín Lilja | des 5, 2018 | Barnabækur, Íslenskar barnabækur, Jólabækur 2018, Ungmennabækur
Fyrir nokkrum mánuðum vissi ég ekkert um fótbolta. Ekki neitt! Og ég er ekki einu sinni að ýkja þegar ég lýsi þessari vankunnáttu minni. Svo kom HM í knattspyrnu og nýtt áhugamál skaut niður rótum hjá þeim sex ára sem núna æfir fótbolta þrisvar í viku. Allt snýst um...
by Katrín Lilja | des 4, 2018 | Ævisögur, Jólabækur 2018, Sterkar konur
Síðasta samtal mitt við ömmu mína var á hjúkrunarheimilinu, hún var eiginlega alveg hætt að geta tjáð sig, en skyldi allt. Ég sagði henni frá strákunum mínum, hvað við værum að bralla og bardúsa og ég held henni hafi þótt ágætt að hlusta á mig. Hún náði að draga mig...
by Erna Agnes | des 3, 2018 | Jólabækur 2018, Skáldsögur, Sterkar konur
Henni býðst að vera fegurðardrottning en hún kýs heldur að helga sig ritlistinni. Ég hef sjaldan eða aldrei upplifað aðra eins bókaást. Ég lagði bókina ekki frá mér. Hún heltók mig viljuga og varð strax hluti af mér; hluti af mínum minningum og hluti af minni...
by Katrín Lilja | des 2, 2018 | Barnabækur, Íslenskar barnabækur, Jólabækur 2018, Sterkar konur
Inga einhyrningur er fallega bleik og glimmerglitrandi saga af hesti sem óskar einskis heitar en að vera einhyrningur. Inga ræðir í bundnu máli við kumpána sinn, asnann Kormák, sem finnst hugmyndin fjarstæðukennd. Inga sé fín eins og hún er. Bílslys verður þó til þess...
by Katrín Lilja | nóv 30, 2018 | Ævisögur, Jólabækur 2018, Skáldsögur
Manneskjusaga eftir Steinunni Ásmundsdóttur er átakanleg saga Reykvískrar konu. Sagan er skáldævisaga byggð á rauverulegum atburðum sem gerast í ekki svo fjarlægri fortíð. Björg er sem kornabarn gefin til ættleiðingar. Foreldrar hennar eru einsetubóndi að austan og...
by Ragnhildur | nóv 29, 2018 | Jólabækur 2018, Ljóðabækur
Ég vil hefja þessa umfjöllun á varnagla. Ég les ekki mikið af ljóðum og hef lítið við á skáldskap. En eitt af því sem gerir ljóð að jaðarbókmenntagrein í dag er líklega þessi tilfinning sem margir fá þegar þeir lesa ljóð, að þeir hafi nú kannski ekki mikið vit á...
by Erna Agnes | nóv 28, 2018 | Klassík, Skáldsögur
Sagan Kapítóla eftir Emmu D.E.N. Southworth byrjar í Fellibyljahöll þar sem Ira Warfield Major, eða Fellibylur gamli eins og hann er jafnan kallaður, situr við arineldinn og skammar Wool, þjóninn sinn, og lætur öllum illum látum. Geðillskan er hreinlega að fara með...
by Katrín Lilja | nóv 25, 2018 | Barnabækur, Vísindaskáldsögur
Þegar ég var yngri hafði ég brennandi áhuga á furðusögum og vísindaskáldsögum. Mér er enn minnisstætt þegar ég las Tímavélina eftir H.G. Wells. Ég var ekkert mjög gömul og pabbi hafði otað henni að mér, ef ég man rétt. Stuttu síðar horfðum við svo á bíómynd byggða á...
by Erna Agnes | nóv 24, 2018 | Lestrarlífið
Já nú er svo sannarlega farið að líða að jólum og farþegar lestrarklefans eru orðnir mjög spenntir fyrir komandi jólapökkum, fullum af dýrindis orðlist í bundnu eða óbundnu formi! Því er tilvalið fyrir alla lestrarhesta og bókaunnendur að skella sér á Bókamessuna í...
by Katrín Lilja | nóv 23, 2018 | Hinsegin bækur, Skáldsögur
Myndin á kápunni heimtar athygli lesandans og er eitthvað svo skemmtilega stuðandi. Ég hafði ekki hugmynd um hvað ég var að fara að lesa en grænlenska konan sem situr svo groddaleg framan á kápunni, nakin, borðandi banana, eins og ekkert annað komi henni við,...
by Ragnhildur | nóv 23, 2018 | Glæpasögur, Jólabækur 2018, Spennusögur
Það er ekki gaman að vera rithöfundur á Íslandi og deila fornafni með öðrum höfundi. Jafnvel óheppilegra er það þegar þessir tveir höfundar gefa út bók sömu jólin, en það hlýtur að vera þyngra en tárum taki að slysast til að gefa þessum tveimur bókum næstum því sama...
by Erna Agnes | nóv 21, 2018 | Ævisögur, Valentínusardagur
Svöng, þyrst og ótrúlega taugaveikluð. Þannig leið mér þegar ég las Ekki gleyma mér eftir Kristínu Jóhannsdóttur, blaðamann og safnstjóra Eldheima í Vestmannaeyjum. Bókin kom út í fyrra en ég frétti ekki af henni fyrr en nú fyrir stuttu. Já, svöng og þyrst. Aldrei á...
by Katrín Lilja | nóv 19, 2018 | Barnabækur, Furðusögur, Jólabækur 2018, Ungmennabækur
Ég var vöruð við því þegar ég fékk bókina í hendurnar, að líklega væri hún ekki fyrir lesendur yngri en tíu ára. Drengjunum mínum sem eru báðir undir tíu ára var því hlíft við þessari bók. Mér var líka sagt að bókin væri hörkuspennandi. Bókin er nokkuð hrollvekjandi,...