by Katrín Lilja | jan 5, 2019 | Dagur bókarinnar 2022, Íslenskar skáldsögur, Jólabækur 2018, Skáldsögur, Sögulegar skáldsögur
Sextíu kíló af sólskini eftir Hallgrím Helgason var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fagurbókmennta og mér finnst mjög líklegt að hún hreppi þau verðlaun, að öðrum tilnefndum bókum ólöstuðum. Ég hef brætt það með mér í nokkra daga hvað ég eigi að...
by Erna Agnes | jan 3, 2019 | Fréttir
Steingeitin J.R.R. Tolkien er afmælisbarn dagsins, fæddur á því herrans ári 1892 og lést þann 2. september 1973. Tolkien er líklega hvað frægastur fyrir að hafa skrifað fantasíurnar Hringadróttinssögu og undanfara hennar Hobbitann þar sem sagt er frá Hringnum eina og...
by Katrín Lilja | jan 3, 2019 | Fréttir
Í byrjun árs skjóta alls kyns metsölulistar upp hausnum um allan vefinn. Það er oftast gaman að skoða þá og þess vegna hefur Lestrarklefinn tekið saman nokkra listana. Metsölulisti Pennans Eymundsson er nær yfirfullur af jólabókum. Þar trónir Arnaldur á toppnum eins...
by Erna Agnes | jan 3, 2019 | Glæpasögur, Jólabækur 2018, Spennusögur
Ég var mjög spennt að lesa nýjustu bók Ragnars Jónassonar, Þorpið og var því afar kát þegar það var haft samband við mig frá bókasafninu og mér tjáð að hún væri komin og biði mín. Nánast um leið hófst lesturinn. Bókin er níunda bók Ragnars og fjallar um Unu, ungan...
by Katrín Lilja | jan 2, 2019 | Fréttir
Fimmta og síðasta Lestrarátak Ævars vísindamanns hófst í gær, 1. janúar, og stendur til 1. mars. Sú breyting er á þetta árið að bæði krakkar og fullorðinir geta tekið þátt. Nemendur í 1.-10. bekk taka þátt eins og venjulega og geta freistað þess að verða persónur í...
by Katrín Lilja | jan 2, 2019 | Fréttir
Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsa eftir handritum til að keppa um Íslensku barnabókaverðlaunin. Skilafrestur á handritum er til og með 8. febrúar. Handritið á að vera skáldsaga fyrir börn eða unglinga og vera minnst 50 ritvinnslusíður að lengd,...
by Katrín Lilja | des 29, 2018 | Ritstjórnarpistill
Við byrjum á að beina kastljósi Lestrarklefans að jólabókunum 2018. Fjölmargar bækur komu út fyrir jólin og við gerum ráð fyrir að lesendur okkar hafi fengið fjölda jólabóka í pakka undir trénu og nýti tímann milli jóla og nýárs, og jafnvel eitthvað inn í janúar, til...
by Katrín Lilja | des 24, 2018 | Lestrarlífið
Þá líður að lokum ársins, jólin eftir nokkra klukkutíma og flestir líklega byrjaðir að elda jólamatinn, í það minnsta undirbúa. Sjálf sit ég enn í sófa, föst í bók, þó búin að skúra út úr húsi en jólamaturinn enn algjörlega óundirbúinn i ísskápnum, börnin enn óböðuð...
by Erna Agnes | des 22, 2018 | Lestrarlífið
Foreldrar! Þessi færsla er sérstaklega tileinkuð ykkur! Þá sér í lagi ef þið hafið áhyggjur af orðaforða ungmennanna og of mikilli snjallsíma- og tölvunotkun. Hver hefur ekki lent í því að koma að ungmenninu á heimilinu niðursokkið í enn einn leikinn; blár...
by Katrín Lilja | des 20, 2018 | Ævisögur, Íslenskar skáldsögur, Jólabækur 2018, Sögulegar skáldsögur
Fyrsta merki um að Heklugjá – leiðarvísir að eldinum eftir Ófeig Sigurðsson væri ekki rétta bókin fyrir mig var þegar ég vaknaði einn morguninn og bókin var gegnvot. Sá eins árs gamli og síþyrsti hafði sturtað stútkönnunni sinni yfir náttborðið með þeim...
by Katrín Lilja | des 18, 2018 | Barnabækur, Jólabækur 2018
Ég rak augun í barnabók í stóru broti í bókabúðinni um daginn. Á kápunni er mynd af draugalegu rauðu húsi í bakgrunni og litlum sætum birni í forgrunni. Björninn er klæddur í doppóttan dúk og heldur á lampa örlítiði áhyggjufullur á svip. Þessi bók kallaði á mig og þar...
by Katrín Lilja | des 16, 2018 | Barnabækur, Íslenskar barnabækur, Jólabækur 2018
Bergrún Íris Sævarsdóttir sló í gegn með fyrri bókinni um Eyju og Rögnvald, Lang-elstur í bekknum, þegar hún kom út í fyrra. Eyja var þá að byrja í fyrsta bekk og var svolítið kvíðin fyrir því öllu saman. Hún þekkti ekki krakkana sem voru í bekknum, en það lagaðist...
by Erna Agnes | des 13, 2018 | Bókmenntahátíð í Reykjavík 2021, Jólabækur 2018, Ljóðabækur
Óhugnaðurinn sem býr í texta Gerðar Kristnýjar í nýjasta ljóðabálki hennar, Sálumessu, nístir lesanda inn að beini; inn í sálina. Hann fær óbragð í munninn þegar ljóðmælandi dregur upp sögu konu, illa leikna af sínu eigin skyldmenni. Voðaverkin sem Gerður skrifar um...
by Ragnhildur | des 11, 2018 | Íslenskar skáldsögur, Skáldsögur, Sögulegar skáldsögur
Það er kominn miður desember og þeir sem á annað borð hafa áhuga á bókum tala ekki um neitt annað en jólabækurnar, nýju bækurnar. Allir vilja fá að vita hvaða bók sé skemmtileg, hvaða bók eigi þann heiður skilinn að sitja með manni á náttfötunum í jólafríinu, í...
by Katrín Lilja | des 11, 2018 | Barnabækur, Bókmenntahátíð í Reykjavík 2023, Íslenskar barnabækur, Jólabækur 2018
Enn einu sinni er langt liðið á desember og Stekkjastaur kíkir við í kvöld, og hver hrekkjóttur bróðirinn á eftir öðrum næstu kvöld. Komu þessara bræðra er beðið með eftirvæntingu hér, líkt og á öðrum heimilum geri ég ráð fyrir, og skórnir eru komnir út í glugga þótt...